
Hér höfum við ljúffengar súkkulaðibollakökur sem eru fylltar með dökku súkkulaði og toppaðar með súkkulaðismjörkremi. Bollakökurnar innihalda engar mjólkurafurðir né egg og eru því vegan.
Uppskriftin og myndir frá Lindu Ben.
Innihaldsefni
-
Kökurnar:
200 g hveiti
45 g kakóduft
1 ½ tsk matarsódi
½ tsk salt
100 g sykur
100 g púðursykur
250 ml hafrajógúrt frá Veru Örnudóttir með súkkulaði og ferskju
100 ml bragðlítil olía (ég nota sólblómaolíu)
2 tsk vanilludropar
3 msk eplamauk
1 msk eplaedikSúkkulaðifylling:
200 g dökkt súkkulaði
1 dl jurtarjómiSúkkulaðismjörkremið:
400 g vegan smjör (mjúkt)
500 g flórsykur
50 g kakóduft
Aðferð
-
- Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
- Blandið saman hveiti, kakó, matarsóda, salti, sykri og púðursykri.
- Bætið út í hafrajógúrti, olíu, vanilludropum, eplamauki og eplaediki. Hrærið þar til allt hefur blandast saman.
- Setjið pappírsbollakökuform í bollakökuálbakka og setjið deigið í formin, fyllið upp 2/3 formsins. Bakið í u.þ.b. 20 mín eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn.
- Kælið kökurnar, útbúið súkkulaðifyllinguna og kremið.
- Bræðið dökka súkkulaðið mjög varlega saman við rjómann, kælið þar til orðið stíft.
- Setjið vegan smjörið í skál og þeytið það þar til það er alveg mjúkt og loftmikið, bætið þá flórsykrinum og kakóduftinu út í og þeytið þar til kremið verður aftur létt og mjúkt.
- Skerið ofan í hverja bollaköku þannig að myndist lítil hola í hverri köku. Setjið súkkulaðirjómablönduna í sprautupoka og sprautið ofan í hverja köku.
- Setjið kremið í sprautupoka með stórum opnum stjörnustút og sprautið kremi á hverja köku.
Verði þér að góðu!


