
Súkkulaði múslí uppskrift sem er nærandi og ótrúlega bragðgott.
Þetta múslí er alveg dásamlega gott með jógúrti. Ég elska súkkulaði hafrajógúrtið að grískum hætti frá Veru. Það er án mjólkurvara og er vegan.
Súkkulaði jógúrt og súkkulaði múslí, en ekkert af því óhollt, bara nærandi og holl næringarefni. Dökkt súkkulaði er nefninlega mikil ofurfæða þar sem það inniheldur svo mikið af andoxurnarefnum og plöntunæringarefnum. Múslíið inniheldur einnig fræ, möndlur, hafra og þurkaða ávexti. Það þarf ekki að baka múslíið, bara blanda öllu saman í skál og geyma.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
300 g grófir hafrar
100 g kasjúhnetur
80 g möndluflögur
150 g þurrkuð trönuber
50 g þurrkaðir bananar
100 g sólblómafræ
80 g graskersfræ
50 g hörfræ
100 g saxað dökkt súkkulaði