
Sítrónu og mangó ískaka frá Jönu. Dásamlega fersk og bragðgóð “ískaka” eða líka oft kölluð “hrákaka”.
Innihaldsefni
-
Botninn:
1 bolli möndlumjöl
1/2 bolli valhnetur
1/2 bolli kókosmjöl
2 bollar döðlur steinlausar
1 tsk vatn
Börkur af einni lífrænni appelsínuSítrónu og mangókrem:
100 gr kasjúhnetur í bleyti í um klukkustund ( hellið svo vatninu af)
1/2 bolli vanilla og kokos hafra jógúrt frá vera
100 gr mangó frosið eða ferskt
4 msk sítrónu safi
2 msk af sítrónuberki
3 msk fljótandi kókosolía
50 ml hlynsíróp eða sæta af eigi vali
Aðferð
-
- Blandið öllu vel saman í matvinnsluvél þar til allt er orðið að klístruðu deigi .
- Pressið niður í bökunnarform( ég set filmu undi svo ég nái þessu auðveldari upp úr forminu) frystið meðan þið gerið kremið.
- Blandið öllu vel saman í matvinnsluvél þar til þetta er orðið flauelsmjúk krem og hellið yfir botninn.
- Frystið yfir nótt.
- Skreytið með ristuðum kókosflögum og jafnvel ferskum blönduðum berjum.
Verði þér að góðu!


