Hér höfum við frægu mjúku kanisnúðana mína nema án mjólkurafurða og eggja. Þetta eru nákvæmlega sömu mjúku og djúsí snúðarnir nema í þetta skiptið eru þeir fyrir alla!
Ofnæmispésa, vegan og alla aðra.
Það kemur í ljós að egg eru alls ekki nauðsynleg í þessa uppskrift og var því einfaldlega sleppt hér, en í staðinn fyrir mjólkina er notað hafrajógúrt með karamellu og perum frá Veru Örnudóttur, en það er mín uppáhalds vara til að baka mjólkurlausar uppskriftir úr. Jógúrtið skilar sér í einstaklega mjúkum og bragðgóðum snúðum.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
Innihaldsefni
-
Snúðar:
7g þurrger
100 ml volgt vatn
250 ml hafrajógúrt með karamellu og perum frá Veru
80g brætt jurta/vegan smjör
450g hveiti
1/2 dl sykur
1 tsk saltFylling:
120g mjúkt jurta/vegan smjör
2 dl sykur
2 msk kanillGlassúr:
400g flórsykur
1/2 tsk vanilludropar
4-5 msk heitt vatn
Aðferð
-
1. Byrjið er á að hafrajógúrt í skál, hitið 100 ml af vatni að suðu og hellið út í jógúrtið,
blandð saman. Bætið gerinu útí og hrærið, leyfið að standa í smá stund.
2. Setjið hveitið í skál, bætið út í það sykrinum og saltinu.
3. Bræðið jurta smjörið, leyfið því að kólna svolítið.
4. Hellið jógúrt-gerblöndunni út í hveitið og hrærið, hellið brædda smjörinu einnig út í á meðan
deigið hnoðast.
5. Látið deigið hefast í 1 – 1 ½ klst eða þangað til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
6. Þegar deigið hefur hefast, dreifið þá svolítið af hveiti á borðið, takið deigið úr skálinni og
fletjið það út í um það bil 20×40 cm flöt.
7. Blandið saman mjúku vegan smjöri, sykri og kanil í skál, hrærið þar til blandað saman. Smyrjið
fyllingunni yfir allt deigið.
8. Rúllið svo upp deiginu frá 40 cm endanum í lengju og skerið hana svo í 12 – 15 bita.
9. Smyrjið frekar stórt eldfast mót með smjöri og raðið snúðunum ofan í formið, það má vera
frekar rúmt á milli snúðanna því þeir eiga eftir að stækka.
10. Leggið hreint viskustykki yfir formið og látið snúðana hefast í um það bil 30 mín.
11. Stillið ofninn á 175°C og undir og yfir hita.
12. Setjið snúðana í ofninn og látið bakast í 35-45 mín (tími fer eftir hversu þykkir snúðarnir
eru) eða þangað til þeir eru orðnir fallega gullnir á litinn.