
Hér höfum við svo ljúffenga og holla bláberja hafraskyrhráköku sem tikkar í öll boxin hvað varðar bragð og holl og góð næringarefni. Hún inniheldur engan hvítan sykur heldur örlítið af hunangi.
Það er gott að eiga þessa skorna í bita inn í frysti og fá sér sneið þegar manni langar í eitthvað gott. Eins er upplagt að smella í þessa fyrir vinkonuboðið eða brönsinn.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
Innihaldsefni
-
Hrákaka
120 g hafrar
30 g kókosflögur
100 g döðlur sem legið hafa í bleyti
50 g möndlusmjör
2 msk hafrajógúrt með vanillu og kókos frá Veru ÖrnudóttirHafraskyrlag
150 g kasjúhnetur sem legið hafa í bleyti
300 g hafraskyr með bláberjum frá Veru Örnudóttir (skipt í tvennt og notað 2x í uppskriftinni)
1 dl kókosrjómi
1 tsk vanilludropar
2 msk hunang
Aðferð
-
- Byrjið á því að útbúa hrákökubotninn með því að setja öll innihaldsefnin í blandara og blandið þar til orðið að þykku mauki.
- Þrýstið blöndunni í botninn á kökuformi, ég notaði 10×30 cm form en þú getur notað hvaða form sem er sambærilega stórt.
- Setjið kasjúhneturnar í blandara ásamt 150 g hafraskyri, kókosrjóma, vanilludropum og hunangi, blandið þar til alveg silkimjúkt mauk hefur myndast. Hellið blöndunni yfir hafrabotninn.
- Setjið 150 g hafraskyr yfir blönduna, notið matskeið og dreifið því yfir, takið svo mjóa endann af skeiðinni og dragið skyrið til svo það blandist fallega saman við.
- Setjið í frysti og frystið a.m.k. í 3 klst eða lengur. Skerið í bita og geymið bitana í frysti, takið út u.þ.b. 10-15 mín fyrir notkun.
Verði þér að góðu!


