
Ef þig langar að taka hafra skyrið þitt á næsta stig þá mæli ég með að þú prófir þetta. Það er hægt að græja nokkrar skyrdósir í einu og geyma inn í ísskáp þar sem súkkulaðihjúpurinn virkar eins og lok á skyrið.
Maður blandar sem sagt hnetusmjöri og chia fræjum sem hafa legið i bleyti saman við hafra skyrið, allt ofan í skyrdósinni. Svo bræðir maður dökkt súkkulaði og setur örlítið af kókosolíu saman við til að það sé auðveldara að dreifa úr súkkulaðinu. Svo setur maður dósina inn í ísskáp aftur þar til súkkulaðið hefur stirðnað, eða eins lengi og maður vill geyma skyrið.
Það er svo einstaklega gott að brjóta súkkulaðið ofan í hafra skyrið og njóta.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
Innihaldsefni
-
Hafraskyr með jarðaberjum frá Veru
1 tsk hnetusmjör
2 tsk chia fræ + 1/2 dl vatn
50 g dökkt súkkulaði
1 tsk kókosolía
Aðferð
-
- Byrjið á því að blanda saman chia fræjum og vatni, hrærið saman og látið standa í ca 10 mín eða þar til orðið að þykku geli.
- Opnið dósina af hafraskyrinu og blandið saman við það hnetusmjöri, ekki taka skyrið úr dollunni. Hellið einnig chiafræjargelinu út í og blandið saman við skyrið.
- Setjið súkkulaðið og kókosolíu í skál, bræðið saman inn í örbylgju, 30 sek í einu og hrærið á milli.
- Hellið súkkulaðinu yfir skyrblönduna og dreifið úr því þannig að súkkulaðið hjúpar skyrið alveg þannig að ekkert loft snerti skyrið og lokar það inni.
- Geymið inn í ísskáp þar til súkkulaðið hefur harðnað, eða lengur.


