Hér höfum við hræðilegan hrekkjavökudrykk sem lítur út fyrir að vera að blæða út. Ótrúlegt en satt bragðast hann alveg frábærlega enda inniheldur hann mangó, banana, vanillu og kókosjógúrt sem er svo allt toppað með trönuberjasafa.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
2 dl frosið mangó
1/2 banani
1 1/2 dl hafrajógúrt með vanillu og kókos frá Veru Örnudóttir
Trönuberjasafi