Hér höfum við alveg dásamlega góða bláberjahafraböku sem inniheldur engin egg eða mjólk og er vegan.
Bláber og sítróna er alltaf svo sumarleg blanda fyrir mér. Það er alveg upplagt að smella í þessa ljúfu og ljúffengu sumarlegu böku á svona rigningar sumardögum eins og þessum.
Þessi baka inniheldur merkilega lítið af sykri og mýktin kemur frá möndlusmjöri og hafraskyrinu sem þýðir að þessa böku má algjörlega flokka sem hollustubakstur. Maður getur því notið þessarar með góðri samvisku.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
100 g frosin bláber
1 msk agave síróp
1 tsk maís sterkja (maizenamjöl)
2 msk hörfræ
1/2 dl vatn
130 g haframjöl (50/50 grófir hafrar og fínir)
2 tsk lyftiduft
safi og börkur af 1 sítrónu
65 g möndlusmjör
2 msk agave síróp
300 g hafraskyr með bláberjum frá Veru Örnudóttir (2 dósir)
150 g flórsykur
1-2 msk vatn
Setjið frosin bláber í pott ásamt agave sírópi og maizenamjöli, hitið á vægum hita í 3-5 mín eða þar til blandan byrjar að þykkna. Slökkvið undir pottinum og leyfið blöndunni að kólna.
Setjið hörfræ og vatn í skál, hrærið saman og látið standa. Blandan mun þykkna eftir nokkrar mín.
Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
Setjið haframjöl og lyftiduft í skál, rífið sítrónubörkinn út í og kreystið svo sítrónusafann í skálina. Hrærið öllu saman.
Setjið möndlumjölið í skálina ásamt agave sírópi, hörfræjarblöndunni og hafraskyrinu, blandið öllu vel saman.
Smyrjið 22 cm kökuform og setjið deigið í formið, setjið bláberjablönduna yfir deigið og bakið í u.þ.b. 40 mín eða þar til bakan er bökuð i gegn.
Blandið saman flórsykri og vatni þar til blandan er þykkfljótandi. Hellið yfir bökuna. Berið hana fram volga.