
Bláberja jógúrtkaka – án eggja og mjólkur, er einstaklega ljúffeng vegan útgáfa af bláberja skyrköku.
Þessi er afskaplega einföld og fljótleg. Það er best að smella henni í smástund í frysti eða kæli þegar hún er tilbúin, þá heldur hún betur lögun þegar maður setur hana á disk, en ef þú vilt borða kökuna strax þá er það í góðu lagi.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
Innihaldsefni
-
200 g hafrakex (t.d. graham kex)
60 g smjör
250 ml jurtarjómi (ég nota alpro)
340 g (2 krukkur) haust hafrajógúrt frá Veru Örnudóttir
1 1/2 dl flórsykur
1 dl bláber
Aðferð
-
- Myljið hafrakexið í matvinnsluvél eða blandara.
- Bræðið smjörið og blandið því saman við kexið, þrýstið því í botninn á kökuformi sem er u.þ.b. 15×25 cm. Setjið í frysti.
- Þeytið jurtarjómann og blandið haustjógúrtinu verlega saman við með sleikju. Bætið flórsykrinum. út í og hellið svo ofan í kökuformið.
- Dreifið bláberjum yfir kökuna.
- Best er að bera kökuna fram alveg kalda, gott er að geyma hana í kæli í 2-3 klst en það má líka bara hana strax fram.
Verði þér að góðu!


