Þessi banana og hindberja smoothie er jafn góður og hann er fallegur. Sætur og góður á bragðið, áferðin þykk og ljúffeng.
Þetta er matarmikill smoothie sem gefur góða seddu í maga. Hreina jógúrtið frá Veru passar svo vel í þennan drykk, ggefur drykknum mjúka áferð og gerir hann matarmeiri. Ef þú vilt auka próteinið ennþá meira þá er í góðu lagi að bæta próteindufti út í, ég mæli með hreinu eða vanillubragði.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
3 frosnir bananar
1 msk valhnetur
1 msk möndlusmjör (má skipta yfir í hnetusmjör)
200 g hafrajógúrt að grískum hætti – hrein frá Veru Örnudóttir
Smá vatn (ef þarf)
2 dl frosin hindber + meira til að skreyta drykkina