Þetta bananabrauð er alveg dásamlega gott! Það er ólíkt öðrum bananabrauðum að því leyti að það inniheldur einnig gulrætur sem gera það ennþá mýkra og minnir svolítið á gulrótaköku.
Það inniheldur engin egg eða mjólkurvörur og er vegan.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
200 g spelt – skipt 50% gróft og 50% fínt (líka hægt að nota hefðhundið hveiti)
2 tsk kanill
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
Klípa af salti
75 g sykur
1 dl hafrajógúrt með vanillu frá Veru Örnudóttur
1/2 dl fljótandi kókosolía
3 meðal stórir vel þroskaðir bananar (+1 auka til að setja ofan á brauðið en má sleppa)
125 g rifnar gulrætur