
Bakað blómkál með kryddjurtasósu sem kemur skemmtilega á óvart.
Bakað blómkál er frábært léttur matur, t.d. hádegismatur borið fram með góðu brauði og hummus. Það virkar einnig sem meðlæti með öðrum mat hvort sem það er með kjötinu, fiskinum eða öðru.
Ef blómkálið neitar að vera skorið í fallegar sneiðar og vill brotna niður í bita, þá er það í góðu lagi, það bragðast alveg jafn vel.
Kalda kryddjurtasósan hentar afskaplega vel með fjölda mörgum mat, til dæmis með öðrum grænmetisréttum, á vefjurnar, með fiskinum eða hverju sem þér dettur í hug.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
Innihaldsefni
-
1 frekar stór blómkálshaus
1/2 dl ólífu olía
1 msk mexíkósk kryddblanda
FuruhneturKöld kryddjurtasósa
2 msk hafrajógúrt að grískum hætti
15 g kóríander
15 g steinselja
1 hvítlaukur
Salt og pipar
1 msk hlynsíróp
Aðferð
-
- Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
- Skerið blómkálið í sneiðar og raðið á ofnplötu. Setjið ólífu olíu í skál ásamt kryddblöndunni, blandið saman og penslið blómkálið á báðum hliðum. Bakið inn í ofni í 20-30 mín eða þar til blómkálið er orðið mjúkt.
- Til að útbúa kryddjurtasósuna setjiði öll hráefni saman í blandara og blandið þar til orðið að sósu.
Berið blómkálið fram með sósunni ásamt furuhnetum. Það er einnig gott að bera það fram með góðu brauði og hummus.


