
Þetta bláberja bananabrauð er einstaklega mjúkt og ljúffengt. Það inniheldur engin egg og engar mjólkurafurðir sem gerir það einnig vegan.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
Innihaldsefni
-
200 g hveiti
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
Klípa af salti
75 g sykur
1 dl hafraskyr með bláberjum frá Veru Örnudóttur
1/2 dl fljótandi kókosolía
3 meðal stórir vel þroskaðir bananar (+1 auka til að setja ofan á brauðið en má sleppa)
130 g bláber (ferskt eða frosin)
1 dl flórsykur
1 msk vatn
Aðferð
-
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
- Stappið banana og setjið í skál ásamt sykri, hafraskyri, kókosolíu og blandið saman.
- Bætið hveiti, lyftiduft, matarsóda og salt í skálina og blandið saman.
- Setjið bláberin ofan í skálina og veltið varlega saman við.
- Hellið deiginu í smjörpappírsklætt form sem er 11×25 cm eða sambærilega stórt.
- Bakið í u.þ.b. 50-55 mín eða þar til brauðið er bakað í gegn.
- Blandið saman vatni og flórsykri og dreifið yfir brauðið.
Verði þér að góðu!


