
Þó það sé komið sumar þá virðast ennþá vera einhverjar leiðindar pestir að ganga. Allavega höfum við hér á þessu heimili verið með einhverja leiðinda pest en erum öll að hressast samt.
Ég er búin að vera borða þessa skál oft í þessum veikindum og gefið krökkunum líka. Skálin er stútfull af hollum og góðum næringarefnum sem styrkja og bæta ónæmiskerfið. Virkilega bragðgóð hollusta sem þú átt örugglega eftir að elska.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
Innihaldsefni
-
1 appelsína
2 gulrætur
1 cm engifer
1 frosinn banani
150 g hafraskyr frá Veru Örnudóttir með appelsínu og engifer
KlakarToppur:
Bananasneiðar
Bláber
Granóla
Aðferð
-
- Setjið afhýdda appelsínu, gulrætir, engifer, frosinn banana og hafraskyr í blandara ásamt klökum og blandið þar til orðið að þykkum drykk.
- Hellið í skál og toppið með bananasneiðum, bláberjum og granóla.
Verði þér að góðu!


