
Dásamlegur hrekkjavökuþeytingur að hætti Jönu í tilefni hrekkjavökunnar. Frískandi og góður morgundrykkur þar sem bananar og mangó koma með bragðið!
Uppskrift og myndir frá Jönu
Innihaldsefni
-
Gula lagið:
2 frosnir bananar
1 bolli frosið mangó
2 gulrætur
1 dós 150 ml hafraskyr lime & kókos
½ -1 bolli möndlumjólk (eða vökvi að eigin vali)
1 tsk. vanilla
1 ½ msk. hampfræ
1 tsk. kanill
½ tsk. túrmerik duftSvarta lagið:
2 dósir hafraskyr lime & kókos
1 tsk. Activated Charcoal (þekkt víða fyrir hreinsunar eiginleika sína en það er talið draga í sig og bundið niður skaðleg efni í líkamanum)Ofan á blönduna:
Kanill og hamp fræ eftir smekk
Aðferð
-
- Fyrir gula lagið, byrjuð á að setja allt hráefnið fyrir það saman og blandið vel í góðum blandara.
- Fyrir svarta lagið, blandið þessu hafraskyrinu og Activated Charcoal vel saman í skál
- Takið tvö glös og smyrjið einni matskeið af grískri jógúrt að innan í glösin og stráið smá túrmerik dufti yfir jógúrtina.
- Byrjið á að hella smá af gula laginu ofan í glösin, skiptið yfir í svarta lagið og skiptið í glösin og toppið síðan með restinni af gula þeytingnum.
- Stráið pínu kanil og hampfræjum ofan á þeytinginn.
Njótið þessa frískandi þeytings í tilefni dagsins.
Verði þér að góðu!


