
Haustleg bökuð epli með æðislegum toppi. Frábær morgunmatur, millimál eða eftiréttur.
Uppskrift og myndir frá Jönu.
Innihaldsefni
-
1 epli, skorið í tvennt og kjarnhreinsað
1 msk kókosolía
1 tsk Pumpkin spies frá KryddhúsinuToppurinn:
1 dós hafraskyr @veraornudottir (hér notaði ég jarðaberja)
1 msk collagen duft
1/2-1 tsk Pumpkin spies frá KryddhúsinuRistaðar möndluflögur
Smá akasíu hunang
Aðferð
-
- Forhitið ofninn í 200 gr.
- Bakið eplin með kókosolíu og Pumpkin spies í 10-15 mín. Fer eftir stærð eplisins
- Ristið möndluflögurnar í nokkrar mín í ofninum meðan eplin bakast (ekki meira en 5 min)
- Á meðan eplið bakast:
Hrærið þá saman hafraskyrinu, collagen duftinu og Pumpkin spies - Takið eplin út úr ofninum toppið þau með hafraskyr blöndunni, því næst möndlu flögunum og smá akasíuhunang
Verði þér að góðu!


