
Hér höfum við tveggja hæða vegan vanilluköku sem er einstaklega ljúffeng en á milli lagana er settur ástríðuávöxtur sem kemur alveg svakalega vel út. Ef þið viljið þá er líka hægt að setja ástríðuávöxtinn út í kremið og hræra honum saman við.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
Innihaldsefni
-
350 g hveiti
300 g sykur
2 tsk matarsódi
1 ½ tsk lyftiduft
½ tsk salt
4 ½ dl hafrajógúrt með vanillu og kókos
1 ½ dl bragðlítil olía
1 msk vanilludropar
1 ½ msk eplaedik350 g vegan smjör
500 g flórsykur
2 msk síróp
3 ástríðuávextir
Aðferð
-
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
- Setjið hveiti, sykur, matarsóda, lyftiduft og salt í skál.
- Bætið haframjólkinni, olíu, vanilludropum og eplaediki út í og blandið saman.
- Smyrjið tvö 20 cm smelluform. Bakið í u.þ.b. 30-35 mín eða þar til pinni kemur hreinn upp úr kökunni þegar honum er stungið í hana miðja. Kælið kökuna alveg niður áður en kremið er sett á hana.
- Setjið vegan smjörið í hrærivél og þeytið þar til mjúkt, bætið þá flórsykrinum saman við og þeytið. Bætið því næst vanilludropum og sírópi út í, þeytið þar til létt og loftmikið.
- Setjið 1 botn á kökudisk og setjið 1/3 af kreminu á botninn og sléttið. Setjið innihald úr 2 ástríðuávöxtum á kremið. Setjið seinni botninn á kremið og hjúpið kökuna með restinni af kreminu. Setjið innihaldið af 1 ástríðuávexti ofan á kökuna.
Verði þér að góðu!


