Hér höfum við æðislegan espresso karamellu smoothie sem er fullur af hollum og góðum næringarefnum. Hann saman stendur meðal annars af frosnum banana, hnetusmjöri og vanillu próteini sem gerir áferðina einstaklega mjúka og “creamy”.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
1 frosinn banani
1 skot espresso
2 döðlur
1 msk hnetusmjör
2 skeiðar vanillu prótein
2 dl hafrajógúrt með karamellu og peru frá Veru Örnudóttir
Fullt af klökum
Örfáar salt hnetur til að skreyta með, má sleppa