
Hér höfum við ljúffengar grænmetisvefjur með próteinríkum ristuðum kjúklingabaunum og grænmeti í hollri og góðri mangó-karrý hafraskyrssósu.
Sósuna má svo nota með fjölmörgum mat til dæmis grill mat, grilluðu grænmeti, á búddaskálina og margt fleira.
Uppskrift og myndir eru frá Lindu Ben.
Innihaldsefni
-
Vefjur
300 g kjúklingabaunir
1 msk taco kryddblanda
150 g hafraskyr lime & kókos frá Veru Örnudóttir
3 msk mangó chutney
2 tsk karrý
Salat
Tómatar
Aðferð
-
- Hellið vatninu af kjúklingabaununum og skolið í sigti. Smellið baununum á pönnu, setjið taco krryddblöndu á pönnuna og ristið baunirnar þar til þær eru orðnar stökkar.
- Setjið hafraskyrið í skál ásamt mangó chutney og karrý, blandið saman.
- Setjið vel af sósunni á vefju, setjið svo salat og saxaða tómata ásamt ristuðu kjúklingabaunum á vefjuna. Rúllið upp og njótið.
Verði þér að góðu!


