Hér höfum við æðislega góðan suðrænan próteindrykk sem kemur öllum í rétta sumarskapið.
Næringarríkur próteindrykkur sem er án mjólkur, dýraafurðar og hnetulaus. Hann hentar því vel fyrir alla, líka þá sem eru með ofnæmi og vegan.
Uppskrift og myndir frá Lindu Ben.
1 dl frosinn ananas
1 dl frosið mangó
1 dl appelsínusafi
150 g hafraskyr með lime og kókos frá Veru Örnudóttur
2 msk (einn skammtur) vegan prótein
Klakar
Setjið öll innihaldsefni saman í blandara og blandið þar til orðið að drykk.